Hittu fólkið á bakvið sögurnar

birgitta björg guðmarsdóttir
Birgitta Björg (f. 1998) er skáld og tónlistarkona frá Reykjavík. Skáldsaga hennar, Moldin heit, vakti gríðarlega athygli og hlaut frábærar viðtökur þegar hún kom út árið 2024. Fyrir hana hlaut Birgitta Fjöruverðlaunin 2025 í flokki fagurbókmennta og var einnig tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Draugamandarínur, fyrsta ljóðabók Birgittu Bjargar, var valin besta ljóðabók ársins af starfsfólki bókaverslana.

felix bergsson
Felix er landskunnur fyrir barnaefni sitt, bæði fyrir sjónvarp og leikhús og sem annar helmingur í dúóinu Gunni og Felix. Hann sendi frá sér Ævintýrið um Augastein árið 2003.
Drápa hefur gefið út eina bók eftir þennan dáða leikara, útvarpsmann og listamann, Ævintýri Freyju og Frikka: Drottningin af Galapagos. Von er á fleiri bókum frá Felix um tvíburuna sem ferðast um heiminn og þurfa að leysa ráðgátur í hverri höfn.

Aleandro Palomas
Alejandro Palomas er margverðlaunaður metsöluhöfundur sem býr fyrir utan Barcelona í Katalóníu ásamt hundinum sínum. Nýjasta bók hans, Við tölum ekki um þetta, vakti gríðarlega athygli í heimalandinu þegar hún kom út. Í raun skók hún stoðir kaþólsku kirkjunnar á Spáni og Alejandro var fenginn sem ráðgjafi ríkisstjórnarinnar varðandi uppgjör þolenda við kaþólsku kirkjuna. Eftir Alejandro Palomas hafa áður komið út á íslensku bækurnar Móðir, Ást, Hundur og Sonur minn. Sonur minn hefur hlotið ótal verðlaun víða um heim og er m.a. kennd í íslenskum menntaskólum.

Meritxell Martí og Xavier Salomó
Hjónin Meritxell og Xavier eru frá Katalóníu, eiga einn son og búa til bækur. Samtals hafa komið út meira en 100 bækur eftir þau, ýmist saman eða í sitthvoru lagi. Meritxell skrifar textann sem Xavier glæðir svo lífi. Samstarfið er þó ekki svo einfalt því bæði hafa þau skoðanir á því sem hitt gerir. Þannig að bækurnar þeirra eru sannkallað samstarfsverkefni.
Hjá Drápu hafa komið út bækurnar Hræðileg gjöf, Hræðileg veisla og Hræðilegt hús. Allt alveg hreint hræðilegar bækur. Einnig tvennan Skemmtilega og skelfilega Húsið hennar ömmu og Dularfulla og óvænta Húsið hans afa. Einnig litla og krúttlega bókin, sem er þeirra vinsælasta í heimalandinu Spáni, Góða nótt.

skúli sigurðsson
Skúli Sigurðsson er lögfræðingur með reynslu af mannúðarstörfum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, flóttamannarétti og blaðamennsku. Með fyrstu bók sinni, Stóra bróðir, skipaði Skúli sér umsvifalaust á bekk með fremstu spennubókahöfundum landsins. Í kjölfar hennar komu Maðurinn frá São Paulo og Slóð sporðdrekans. Stóri bróðir hlaut Blóðdropann, íslensku glæpasagnaverðlaunin, og Maðurinn frá São Paulo var tilnefnd til þeirra. Ragnarök undir jökli er fjórða skáldsaga Skúla.

Sigurður Héðinn
Sigurður Héðinn er einn þekktasti veiðimaður landsins auk þess að vera heimsþekktur fluguhnútari. Hann hefur sent frá sér bækurnar Af flugum, löxum og mönnum, Sá stóri, sá missti og sá landaði, Veiði von og væntingar og Komdu að veiða. Fyrstu bækurnar þrjár mynda eina heild. Bækur Sigga eru einstaklega vandaðar af efni og innihaldi og ekkert áhugafólk um stangveiði ætti að láta þær fram hjá sér fara.

Elías og Agnes Vahlund
Hjónin Elías og Agnes eru höfundar hinna ógnarvinsælu bóka Handbók fyrir ofurhetjur. Hann er sænsku og hún pólsk. Þau kynntust við vinnu fyrir sirkus í Stokkhólmi, náðu svona vel saman og eiga nú einn son. Þau búa bæði í Svíþjóð og Póllandi.
Elías skrifar textann í bækurnar og Agnes teiknar myndirnar.
Bækurnar í bókaflokknum eru orðnar 11 talsins og hafa þau gefið út að sú tólfta verði sú síðasta. Einnig hefur Drápa gefið út verkefnabækur úr smiðju ofurhetjunnar Lísu. Þá gefur Drápa einnig út bókaflokkinn Ævintýri fyrir ofurhetjur, sem fjallar um sömu krakka og Handbókin nema hvað í þessum bókaflokki eru þau orðin eldri og takast á við stærri verkefni.

kári valtýsson
Kári er fæddur 1985, starfar sem lögmaður og rekur eigin lögmannsstofu, Hann er giftur og á þrjú börn. Hyldýpi er fjórða bók Kára Valtýssonar og sú fyrsta sem Drápa gefur út.

Angela Marsons
Bækur Angelu hafa komið út á meira en 25 tungumálum víða um heim. Drápa hefur gefið út 11 bækur eftir Angelu undanfarin 11 ár. Af augljósum ástæðum koma bækur Angelu Marsons út í mars á Íslandi. Angelu gekk illa að fá sína fyrstu bók gefna út og fékk ótal höfnunarbréf frá útgefendum. Hún var orðin atvinnulaus og að verða heimilislaus þegar það kom loksins jákvætt svar आणि fyrsta bókin hennar kom út. Kvenhetjan magnaðा Kim Stone er lögreglukona í Svörtu löndum á Englandi, sem er rétt fyrir utan Birmingham, og leysir hún erfiđ sakamál ásamt teymi sínu, um leið og hún þarf að fást við drauga eigin fortíðar.

Freida McFadden
Freida McFadden er ekki einungis metsöluhöfundur heldur er hún starfandi læknir og hefur sérhæft sig í sjúklingum með heilaskaða. Freida hefur skrifað fjölmargar metsölubækur. Bækur hennar eru af sálfræðilegum- og spennutoga og eiga það sameiginlegt að gera lesendur tortryggna í garð allra persóna.
Freida býr með fjölskyldu sinni og svörtum ketti í aldagömlu þriggja hæða húsi með útsýni yfir hafið. Í húsinu er stigi sem grenjar og stynur við hvert skref, og það heyrir enginn í manni þótt maður öskri. Nema kannski ef öskrað er nógu hátt.
