
Bækur Angelu hafa komið út á meira en 25 tungumálum víða um heim. Drápa hefur gefið út 11 bækur eftir Angelu undanfarin 11 ár. Af augljósum ástæðum koma bækur Angelu Marsons út í mars á Íslandi. Angelu gekk illa að fá sína fyrstu bók gefna út og fékk ótal höfnunarbréf frá útgefendum. Hún var orðin atvinnulaus og að verða heimilislaus þega það kom loksins jákvætt svar og fyrsta bókin hennar kom út. Kvenhetjan magnaða Kim Stone er lögreglukona í Svörtu löndum á Englandi, sem er rétt fyrir utan Birmingham, og leysir hún erfið sakamál ásamt teymi sínu, um leið og hún þarf að fást við drauga eigin fortíðar.

Leave a Reply