Hyldýpi

Höf.: Kári Valtýsson

Dögg og Sarah, sem er ungur og frakkur læknir frá Brooklyn í New York, starfa báðar fyrir Lækna án landamæra og verða nánar vinkonur meðan þær takast á við hörmungarnar í flóttamannabúðunum þar sem þær starfa. Dögg fellir hug til yfirlæknis á svæðinu sem heitir Omar Mohammed.

Dag einn fara Omar, Sarah og Dögg í sendiför til borgarinnar Nyala en sú för hefur hræðilegar afleiðingar í för með sér. Mitt í hringiðu afkomuótta Kristjáns og kvíðakasta fær hann í hendurnar tvö athyglisverð mál. Annars vegar mál fylgdarlauss barns frá Súdan og hins vegar líkamsárásarmál ungs Pólverja sem heitir Pawel Nowak en sá á vægast sagt vafasama fortíð. 

Eitt örlagaríkt kvöld eltir fortíð Pawels hann uppi og áður en hann veit af hafa meðlimir harðsvíraðra glæpasamtaka hann undir smásjánni. Uppgjör við fortíðina dregur dilk á eftir sér og Pawel dregst inn í atburðarás sem hann ræður engan veginn við. Líf þessara þriggja ólíku einstaklinga eiga eftir að tvinnast saman.

Með afdrifaríkum hætti.

Leave a Reply

Discover more from Drápa

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading