KOMDU AÐ VEIÐA: Bók fyrir laxveiðifólk

Höf.: Sigurður Héðinn

Í Komdu að veiða fer Sigurður Héðinn með veiðimenn og -konur í ferðalag um sumar af bestu ám landsins og segir frá helstu veiðistöðum í hverri á – og hvernig eigi að veiða þá. Með vatnslitamyndum af hverjum stað verður upplifun lesandans enn sterkari. Auk þess birtir hann hér nýjar veiðiflugur og veitir fjölmörg góð ráð við laxveiðarnar. Sigurður Héðinn er einn af bestu og þekktustu veiðimönnum landsins og hefur bæði unnið sem leiðsögumaður veiðimanna um áraraðir og verið einn einn af fremstu fluguhnýturum landsins. Reyndar eru flugur hans heimsþekktar og notaðar víða um heim.

Áður hafa komið út þrjár veiðibækur eftir Sigga sem allar hlutu mjög góðar viðtökur.

Miðstöð íslenskra bókmennta styrkti útgáfu bókarinnar.

Kaupa bók: https://www.penninn.is/is/book/komdu-ad-veida-0

Leave a Reply

Discover more from Drápa

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading