Minningaskrínið

Höf.: Kathryn Hughes

Jenny opnar skrínið sem hún hefur varðveitt í marga áratugi. Þar geymir hún dýrmætustu minjagripi sína, þar á meðal steinvölu, útskorna styttu og blaðaúrklippu sem hún afber varla að líta á. Hún veit að loksins er tíminn runninn upp. Eftir stríðið skildi hún hluta af hjarta sínu eftir í sjávarþorpi á Ítalíu. Hún verður að snúa aftur til Cinque Alberi, hve erfitt sem það mun reynast, og sættast við fortíðina.

Candice átti erfiða æsku en nú dreymir hana um framtíðina með manninum sem hún elskar en er hann sá sem hún telur hann vera? Þegar Candice fær tækifæri til að ferðast með Jenny til Ítalíu veit hún ekki að ferðin mun opna augu hennar fyrir óþægilegum staðreyndum. Getur kveðjustund annarrar konu veitt henni kjark til að byrja upp á nýtt?

Byggt á sönnum atburðum

Leave a Reply

Discover more from Drápa

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading