Moldin heit

Höf.: Birgitta Björg Guðmarsdóttir

Ástin í lífi Karenar deyr. Hún mætir í jarðarförina óboðin, situr aftast og segir engum hver hún er. En eftir að hafa borið eina fortíð til grafar skýtur önnur upp kollinum. Moldin heit fjallar um ástina, listina, sorg og missi. Hér er á ferðinni feikisterk skáldsaga frá nýrri og spennandi rödd í íslenskum bókmenntaheimi. Karen sér Ými, kollega sinn, út um gluggann í erfidrykkjunni þar sem hann virðist ætla að fara sér að voða. Í kjölfarið er þeim hrundið af stað í ferð þar sem þau þurfa að horfast í augu við hvaða hlutverk þau leiki hvort í annars lífi og í flóknu dansverki, og hvaða nýju hlutverk standa þeim til boða.

Kaupa bók: https://www.penninn.is/en/book/moldin-heit

Leave a Reply

Discover more from Drápa

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading