Móðurkviður

Höfundur Júlía Karín Kjartansdóttir

Móðurkviður er áhrifamikil ljóðabók um þrá eftir barni, ófrjósemi, meðgöngu, fæðingu og móðurást. Með húmor, berskjöldun og hlýju lýsir Júlía því hvernig draumur verður að von, von að þrá og þrá að sársauka þar til lífið sjálft tekur við. Einlæg, átakanleg og falleg bók.

Móðurkviður er ljóðabók sem er óður til fyrsta barns ljóðmælanda. Ljóðin mynda samfellda frásögn, þau leiða lesandann í gegnum frjóvgunarferli, meðgöngu, fæðingu og fyrsta árið með nýju barni, og kafa inn í þær afar flóknu tilfinningar sem ölu því fylgja. Leitast er við að kjarna þessar sammennsku tilfinningar og upplifanir sem svo mörg okkar upplifa í gegnum barneignarferlið, en erum stundum feimin við að tala um.

Júlía Karín Kjartansdóttir útskrifaðist frá Háskóla Íslands í íslensku með ritlist sem aukagrein vorið 2024. Móðurkviður er fyrsta bók Júlíu.Innbundin

Leave a Reply

Discover more from Drápa

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading